Eina skipti sem ég hef keppt í fótbolta... alveg spurning um að hætta á toppnum!!
Monday, July 18, 2011
F-Ó-T-B-O-L-T-I
Hér er mynd af okkur heimahúsmæðrum sem unnum stórsigur 3-2 gegn brottfluttum húsmæðrum í Súgandafirði í fótbolta á Sælunni 2011.... Auðvitað stórglæsilegar GULLSTELPUR !!!!!
Tuesday, May 17, 2011
Monday, May 16, 2011
Krukkuhekl...
Monday, April 25, 2011
Ekkert Ikea á Suðureyri
Þá er eina ráðið að kikja í geymsluna og vita hvort það sé ekki eitthvað sniðugt sem leynist þar. Frumburðinum mínum vantaði bókaskáp og pabbinn og afinn redduðu því hratt og örugglega enda ýmislegt til í góðri geymslu. Með smá ajax og einni tusku til að losna við rykið þá er þetta útkoman.
Saturday, March 5, 2011
Taskan góða
Svona lítur þessi elska út, gerð úr alls konar afgöngum og markmiðið var að hún kostaði ekkert
Fóðrið innan í er gömul gardína úr herberginu hans Daníels
Handfangið var heklað úr stuðlum ca 8cm á breidd sem ég saumaði svo saman og sneri við, svo það mundi líta betur úr og teyjast minna þegar taskan er full af girnilegu garni og tilheyrandi saumadóti.
Þetta er botninn á töskunni. Ég skar líka út pappaspjald úr pleymó kassa frá Aroni Kára til að hafa góðan og harðann botn sem ég saumaði í gardínuefnið.

Svo var þetta bara heklað eftir aðstæðum, garni og tíma í hvert sinni en oftast eftir nennu og hún var "hönnuð" jafnóðum og heklað var.
Græni hlutinn eru stuðlar og eftir ca 8 umferðir þá fór ég að hekla saman lykkjur í ca 4-5 umferðir til að hún mundi ekki enda miklu stærri að ofan en neðan
Saturday, February 19, 2011
Friday, February 11, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)