Thursday, June 10, 2010

og hana nú sagði hænan og lagðist á bakið














Mér sýnist á öllu að ég eigi aðeins tvo blogg aðdáendur í bloggheimum, svona miðað við commentin sem ég fékk eftir að hafa vakið upp annars ágæta síðu eftir ársdvala.

Mér finnst nú hálfleiðinlegt að blogga fyrir bara tvo lesendur og hef þvi ákveðið að sleppa þessu bara alfarið og halda mig við feisbúkk síðuna mína og lesa bara hjá öðrum. Enda hef ég svosem ekkert áhugavert að segja frá held ég bara.

Tja það eina sem mögulega gæti fengið mig til þess að endurskoða þessa ákvörðun mína er að fá gríðarlega hvatningu og fleiri lesendur inná bloggið..... en nei ég sé það ekki alveg gerast

Anyway það var gaman að prófa þetta

takk fyrir mig

3 comments:

davíð said...

Mér sýnist þessi hæna ekki vita hvort hún sé að koma eða fara.

Þetta hlýtur að teljast vera ÖMURLEGASTA comeback í sögu bloggsins. By-far.

Sigga said...

Ég sé að við hjónaleysin erum ekki nógu mikilvægir lesendur hjá akureyrsku hænunni. Ég á líka bara tvo blogg aðdáendur, en ég blogga samt áfram fyrir þá!!!

Tommi said...

Þið eigið öll miklu fleiri bloggaðdáendur en þið haldið... Ég heyrði einmitt vitnað í hjúkkunemann norðan heiða í áhugaverðum þætti um páfugla á Rás 1 í gærkvöldi