Saturday, October 30, 2010

Meðan ég dvel í borginni.....

Þá sér minn heittelskaði um börnin okkar, ég fékk skilaboð í síman um að það væri súkkulaðikaka í kvöldmat frá þeim eldri og að þeir bræður væru að baka kökuna saman, ok ekki það hollasta kannski en ekki get ég gert neitt í því stödd í á suðurhorni landsins. Svo fékk ég símtal frá þessum fyrrnefnda um að ég ætti tölvupóst með myndum frá bakstrinum.

Fæst orð ber minnsta ábyrgð....







1 comment:

Gulla said...

Þeir standa sig vel í bakstrinum bræðurnir :-) Jóhanna þú mátt endilega setja inn nýja mynd af Daníeli - ég hef ekki séð hann í svo mörg ár