Sunday, September 19, 2010

aaaaaaatttttttjjjjjjúúúúúú


Föstudagskvöldið var æði, við hjúkkuskvísur fórum á slökkviliðsstöðina í vísindaferð og það var æði bara í alla staði, teknar voru nokkrar myndir þar sem ég set inn síðar. Ég nældi mér í flensuskít í leiðinni og er búin að liggja lárétt alla helgina með hor hósta og hita. Planið er að hrista það af sér því í kvöld er dinner og leikhúsferð með mínum heittelskaða á dagskrá og eigilega eina tækifærið okkar til þess að gera svoleiðis saman áður en við flytjum vestur.
Sökum heilsubrest læt ég þetta blogg duga í bili :/


2 comments:

Gulla said...

Góða skemmtun í kvöld Jóhanna mín og vonandi verður þú fljót að ná þessum kverkaskít úr þér :-)

Villi said...

Dönsuðu hjúkkunemarnir súludans á slökkvistöðinni?